Til bakaPrenta
Bæjarráð Garðabæjar - 12. (2207)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
31.03.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Margrét Bjarnadóttir varamaður,
Gunnar Valur Gíslason varamaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Rakel Steinberg Sölvadóttir varaáheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Guðný Hrönn Antonsdóttir samskipta- og kynningarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2511456 - Húsnæðisáætlun HMS 2026.
Lögð fram húsnæðisáætlun Garðabæjar til 10 ára í samræmi við 1. gr. reglugerðar um húsnæðisáætlun sveitarfélaga nr. 1248/2018, sbr. breyting samkvæmt reglugerð nr. 1597/2022 og lögum um húsnæðismál nr. 44/1998. Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun Garðabæjar 2026 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
DRÖG - Húsnæðisáætlun 2026 - Garðabær.pdf
2. 2603490 - Verklag vegna veðurviðvarana.
Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar, gerði grein fyrir verklagi Garðabæjar vegna veðurviðvarana.
3. 2603439 - Sjúkraþjálfun Garðabæjar - samningur um leigu á rými í Miðgarði.
Lögð fram drög að leigusamningi milli Garðabæjar og Sjúkraþjálfunar Garðabæjar fyrir aðstöðu heilsueflandi starfsemi í 600 fermetra rými á 2. hæð í Miðgarði.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samning og veita bæjarstjóra heimild til að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.
Sjúkraþjálfun GB Drög að leigusamningi 12. mars 2026- bæjarráð 31032026.pdf
4. 2306167 - Friðarvellir 1 - samningur um lóðaúthlutun fyrir meðferðarheimili.
Lagður fram samningur um úthlutun lóðar fyrir meðferðarheimili að Friðarvöllum. Um er að ræða um 10.000 fermetra lóð þar sem rísa mun um 1.300 fermetra hús. Jafnframt lagður fram makaskiptasamningur um Spítalaveg 2 og afsal fyrir sömu eign.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að undirrita úthlutunarsamning um lóð fyrir meðferðarheimili fyrir hönd Garðabæjar. Þá felur bæjarráð sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að undirrita makaskiptasamning og afsal fyrir Spítalaveg 2.
Meðferðarheimili við Vífilsstaðavatn - drög að samningi um lóðarúthlutun_GEF (004).pdf
Makaskipti - Spítalavegur 2 og lóð við Rjúpnadal.pdf
Afsal Spítalavegur 2.pdf
5. 2409395 - Hestamannafélagið Sprettur - viljayfirlýsing.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til þess að undirrita, f.h. Garðabæjar, viljayfirlýsingu Garðabæjar, Kópavogs og Hestamannafélagsins Spretts vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar félagshesthúss og skólastofu á félagssvæði Spretts.
Viljayfirlýsing Sprettur - hreint skjal.pdf
6. 2509275 - Endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta endurskoðaða stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ.
7. 2603474 - Umsókn Brynju leigufélags um stofnframlag.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að verða við erindi Brynju leigufélags ses. um greiðslu sex stofnframlaga vegna kaupa á fjórum tveggja herbergja íbúðum og tveimur þriggja herbergja íbúðum í Garðabæ árið 2026. Áætlað kaupverð er 463,6 mkr. og nemur stofnframlag 12% eða 55,6 mkr.
Stofnframlög 2026_Garðabær.pdf
8. 2603255 - Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna stjórnsýslukæru í máli ÚUA nr. 2603004.
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2603004, þar sem hafnað er kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa á grundvelli hinnar kærðu deiliskipulags-ákvörðunar.
2603004 Vetrarmýri og Smalaholt.pdf
9. 2603213 - Opnun tilboða vegna jarðvinnu við búsetukjarna við Haustbraut.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Jarðvinna fyrir 7 íbúða búsetukjarna ásamt starfsmannaaðstöðu við Haustbraut 2."

1. Karína ehf., kr. 16.777.100 (57%).
2. Svartaskarð ehf., kr. 20.153.900 (69%).
3. Gott verk ehf., kr. 20.671.900 (71%).
4. Dráttarvélar Vélaleiga ehf., kr. 22.507.920 (77%).
5. D-Ing-verk ehf., kr. 23.279.700 (79%).
6. F.T. ehf., kr. 25.024.900 (85%).
7. Grafa og grjót ehf., kr. 26.590.492 (91%).
8. Fagurverk ehf., kr. 26.961.000 (92%).
9. Urð og Grjót ehf., kr. 27.263.300 (93%).
10. Línuborun ehf., kr. 27.953.414 (95%).
11. Gleipnir verktakar ehf., kr. 32.000.000 (109%).
12. Emkan ehf., kr. 33.300.000 (114%).
13. Stjörnugarðar ehf,. kr. 43.136.150 (147%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 29.296.500. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Karínu ehf. ehf., að fjárhæð kr. 16.777.100, (57% af kostnaðaráætlun).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
10. 2603500 - Útboð með umsjón og eftirliti stækkunar Tónlistarskólans.
Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna umsjónar og eftirlit með framkvæmdum við stækkun Tónlistarskóla Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
11. 2509209 - Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. mars 2026 varðandi stöðuleyfi fyrir sauna hús. Sótt er um að fá leyfi til að koma fyrir færanlegu saunuhýsi við efra bílastæðið við Vífilsstaðavatn. Sú staðsetning sem lögð er til er utan friðlands Vífilsstaðavatns.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi fyrir saunahýsi til 6 mánuða til reynslu enda er starfsemin innan svæðis sem er fyrirhugað til almennrar útivistar samkvæmt deiliskipulagi.
12. 2603431 - Vinastræti 16 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Norðurporti ehf., kt. 591115-0220 leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi atvinnurýmis 01-02, að Vinarstræti 16.
13. 2510328 - Hegranes 29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Þórði Gísla Guðfinnssyni, kt. 010594-2279 leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi einbýlishúss og stækkun svala, að Hegranesi 29.
Hegranes 29 - byggingarleyfisgjald.pdf
2026_03_Hegranes_29.pdf
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 9 (16.7.2025) - Hegranes 29 - breyting á svölum - Fyrirspurn til umhverfissviðs.pdf
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 11 (26.3.2026) - Hegranes 29 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1.pdf
14. 2603492 - Bréf stjórnar kórs Vídalínskirkju um styrk vegna vorferðar um Snæfellsnes og tónleikahalds í Ólafsvíkurkirkju, dags. 26. mars 2026.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu við úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta