Til bakaPrenta
Bæjarráð Garðabæjar - 4. (2199)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
03.02.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Margrét Bjarnadóttir varamaður,
Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Guðlaugur Kristmundsson áheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Guðný Hrönn Antonsdóttir samskipta- og kynningarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2512300 - Akrabraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Yrki eignum ehf., kt. 581113-1100, leyfi fyrir innri breytingar á atvinnurými að Akrabraut 1.
2. 2512028 - Haukanes 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigurði Inga Jóelssyni, kt. 220178-5549, leyfi fyrir breytingum á innra rými og skipulagi, utanhússklæðningu og þaki, ásamt breytingum á útisvæði að Haukanesi 16.
3. 2405512 - Þorraholt 2-4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Heklu fasteignum ehf., kt. 631202-3060, leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi og lagfæringum stærða að Þorraholti 2-4.
4. 2501011 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Garðprýði 1 - Deiliskipulagsbreyting.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1 að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Einnig lagt fram erindi lögmanns umsækjanda þar sem brugðist var við þeim athugasemdum sem borist höfðu.
Skipulagsnefnd taldi að sjónarmið beggja aðila lægju ljós fyrir og að andmælaréttur hafi verið virtur á báða bóga.
Í greinargerð deiliskipulags Garðahrauns eru sett fram markmið deiliskipulagsins. Þar segir í kafla 1.5. "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraumyndanir eftir því sem nokkur kostur er." Enn fremur segir í kafla 2.1.2. um nýtingarhlutfall: "Stærðin takmarkast fyrst of fremst af mikilvægum umhverfisþáttum hverrar lóðar og er ekki sjálfgefið að þessi rýmilegu mörk (þ.e. uppgefið nýtingarhlutfall) gildi í öllum tilfellum."
Í kafla 1.5. er vikið að þeim möguleika að skipta lóðum upp: "Gert er ráð fyrir þeim möguleika að lóðum Hrauns og Hrauntungu verði skipt í smærri lóðir, með sambærilegu skipulagi og hér er fjallað um". Ljóst er að ekki var horft til möguleika að lóð Hraungarða (Garðprýði 1) yrði skipt upp, skv. greinargerð deiliskipulagsins.
Lóðin Garðprýði 1 er stærsta lóðin innan skipulagssvæðisins sem hefur verið skipulögð og stærri hluti hennar, allt að tveir þriðju, er skilgreindur sem svæði með hraunmyndunum sem taka þurfi tillit til við staðsetningu og útfærslu húss og lóðar. Það skýrist af því hve hraunmyndanir á lóðinni þar eru miklar og sérkennilegar og hafa áhrif á umhverfisgæði aðliggjandi húsa.
Viðbrögð eigenda aðliggjandi lóða hafa verið mjög afdráttarlaus og hafa þeir gengið út frá því að þeir myndu njóta þeirra gæða sem í hraunmyndununum felast til frambúðar. Þeim hefur verið bent á að byggingarreitur sá sem nú er til staðar hefði minnkað umtalsvert samkvæmt tillögunni þó svo að lóðinni yrði skipt í tvær lóðir. Afstaða eigenda aðliggjandi lóða er óbreytt, þó svo að síðari tillagan sem grenndarkynnt var geri ráð fyrir húsi á öðrum stað sem liggur neðar í lóðinni. Í svo viðkvæmu umhverfi þar sem áhersla er lögð á að varðveita náttúruleg sérkenni landslags er mikilvægt að sátt náist um framkvæmdir sem hafa árhrif á þau gæði sem leitast er við að varðveita. Skipulagsnefnd taldi að framlagðar tillögur hafi ekki náð fram því markmiði og sé fullreynt að reyna að skapa sátt um þær.
Í ljósi ofangreindra atriða hafnaði skipulagsnefnd grenndarkynntri tillögu.
5. 2509095 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt N - Dsk.br. leikskóla- og þjónustulóð.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðir fyrir búsetukjarna og leikskóla verði felldar út enda gerir tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholt ráð fyrir sömu lóðum á öðrum stað. Afmörkun deiliskipulagssvæðis hefur verið felld að afmörkun tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholt.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 2409103 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholts að lokinni auglýsingu og skoðun umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á tillögunni:
Einnar hæðar raðhús verða 18 í stað 11.
Tveggja hæða raðhús verða 22 í stað 30.
Parhús er fellt út úr tillögu.
Íbúðareiningar verða 75 í stað 77.
Gert er ráð fyrir staðsetningu dreifistöðvar rafmagns eins og minnst er á í umsögn Veitna.
Ýmsar minniháttar lagfæringar gerðar á greinargerð að tillögu umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa.
Með breytingum á gerðum raðhúsa er komið til móts við athugasemdir sem borist hafa.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
7. 2410080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, rammahluta Vífilsstaðalands sem nær til háholts Hnoðraholts.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: Tákn fyrir svæði fyrir samfélagsþjónustu (4.05 S leikskóli) á háholti Hnoðraholts er fellt út. Iðnaðarsvæði (4.22 I, hitaveitutankar) á háholti Hnoðraholts er fellt út. Gert verður ráð fyrir svæði fyrir samfélagsþjónustu (4.22 S) þar sem núgildandi skipulag gerir ráð fyrir hitaveitutönkum. Þar sem að fyrir liggur að Veitur telja ekki þörf á að gera ráð fyrir svæði efst á holtinu fyrir hitaveitutanka gefst færi á að staðsetja leikskóla á stað sem hefur kosti umfram þann stað sem núgildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Lögun og stærð landnotkunarreitanna (4.04.Íb) og (4.18 Op) breytist lítillega.
Tillagan var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður.
Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Tillagan samþykkt óbreytt sem breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8. 2601546 - Garðatorg - framkvæmdir í miðbæ.
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir framkvæmdum við göngugötu Garðatorgs og á yfirbyggðu Garðatorgi. Jafnframt fór hún yfir stöðu framkvæmda við þjónustuver Garðabæjar.
9. 2601547 - Hjallastefnan - samstarf um uppbyggingu á Vífilsstöðum.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Hjallastefnuna ehf. um uppbyggingu og útfærslu skólastarfs á Vífilsstöðum.
10. 2601497 - Tilkynning frá stjórn EBÍ um reglur og umsóknarfrest Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 27.01.26.
Lagðar fram breytingar á reglum fyrir styrktarsjóð EBÍ, sem samþykktar voru af stjórn EBÍ í september 2025.
11. 2601521 - Bréf Sóknarnefndar Garðasóknar varðandi beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda árið 2026, dags. 28.01.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Garðasókn styrk að fjárhæð kr. 881.175 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.
12. 2601522 - Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn, 305. mál, dags. 28.01.26.
Lagt fram.
13. 2601514 - Erindi Alþingis varðandi breytingu á þingsályktun nr.24/152 um áætlun, vernd og orkunýtingu landsvæða, 307. mál, dags. 28.01.26.
Lagt fram.
14. 2601523 - Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks, 311. mál, dags. 28.01.26.
Lagt fram.
15. 2601524 - Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils ofl.), 312. mál, dags. 28.01.26.
Lagt fram.
16. 2408215 - Stofnun nýrra félaga Sorpu bs. vegna ESA máls.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að staðfesta tillögu sem felur í sér að SORPU bs. er heimilað að stofna tvo ný dótturfélög með takmarkaðri ábyrgð, sem munu taka yfir efnahagslega starfsemi Sorpu bs. í samræmi við sátt við ESA.
Annars vegar er um að ræða félag sem annast mun móttöku rekstrarúrgangs og rekstur urðunar og hins vegar félag sem annast mun rekstur GAJA og meðhöndlun lífræns úrgangs.
17. 2505268 - Miðgarður - skoðunarferð.
Bæjarráð heimsótti Miðgarð og kynnti sér aðstöðu í húsnæðinu og stöðu byggingaframkvæmda á 2. hæð Miðgarðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta