| |
| 1. 2601022F - Fundargerð bæjarráðs frá 20/1 ´26. | Fundargerðin sem er 6.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála. | 1.1. 2507256 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Hagræðing Bæjarstjóri kynnti útfærslu hagræðingar vegna fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir 2026. Hagræðingarkrafa nemur alls kr. 200.000.000 og skiptist eftirfarandi á milli sviða: 1. Velferðarsvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,0% 2. Fræðslu- og frístundasvið kr. 80.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,4%. 3. Umhverfissvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,4% (án eignasjóðs). 4. Þjónustu- og þróunarsvið kr. 15.000.000. Hlutfall hagræðingar 2,0%. 5. Fjármála- og stjórnsýslusvið kr. 5.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,5%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi hagræðingartillögur við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029).
| | |
|
| 2. 2601035F - Fundargerð bæjarráðs frá 27/1 ´26. | Björg Fenger ræddi 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025 og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna niðurstöðum þjónustukönnunar Gallup fyrir árið 2025 sem staðfesta að íbúar Garðabæjar eru almennt mjög ánægðir og er heildarupplifun bæjarbúa af þjónustu sveitarfélagsins jákvæð og hvergi meiri meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins. Heildaránægja með þjónustu Garðabæjar mælist 86% og er bæjarfélagið í efstu sætum samanborið við 20 stærstu sveitarfélög landsins. Ánægja með leikskólaþjónustu, grunnskóla og aðstöðu til íþróttaiðkunar er mikil og mælist með því hæsta sem gerist í samanburði við önnur sveitarfélög. Niðurstöðurnar staðfesta sterkar grunnstoðir bæjarins og endurspegla faglega og metnaðarfulla vinnu starfsfólks Garðabæjar. Um leið minna niðurstöðurnar á mikilvægi þess að halda áfram að þróa og bæta þjónustu í ört vaxandi sveitarfélagi. Ánægja eykst frá fyrra ári með þjónustu við eldri borgara og við fatlað fólk sem sýnir að markviss umbótavinna er að skila árangri. Samhliða því er ljóst að áfram þarf að rýna þjónustuna og grípa til frekari úrbóta þar sem þörf er á. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja þjónustukannanir sem þessar mikilvægt stjórntæki og munu hér eftir sem hingað til vinna að því að efla gæði þjónustu við íbúa Garðabæjar enn frekar með skilvirkni og hagkvæmni að leiðarljósi þannig að ánægja bæjarbúa aukist. Við þökkum stjórnendum og starfsfólki bæjarins fyrir mikinn metnað og fagmennsku í sínum störfum sem skilar sér í ánægju íbúa." Þá ræddi Björg 3.tl. útboð - stækkun Tónlistarskóla og 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025. Bókaði Guðlaugur að hann tæki undir framkomna bókun Bjargar Fenger. Loks ræddi hann 2.tl. samfélags- og viðburðarhús í Garðabæ.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025 og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.
Ingvar Arnarson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025 og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup.
Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. Garðbæingurinn okkar árið 2025, 6.tl. Holtsbúð 87 - samstarf um endurbætur og notkun hússins og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina og 1.tl. Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025.
Fundargerðin sem er 11.tl. er samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2601048F - Fundargerð bæjarráðs frá 3/2 ´26. | Gunnar Valur Gíslason ræddi 16.tl. stofnun nýrra félaga Sorpu bs. vegna ESA máls.
Björg Fenger ræddi 5.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Hnoðraholt norður - deiliskipulagsbreyting leikskóla- og þjónustulóð, 6.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Hnoðraholt háholt, deiliskipulag, 7.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar - Hnoðraholt -háholt - aðalskipulagsbreyting, 8.tl. Garðatorg - framkvæmdir í miðbæ og 17.tl. Miðgarður - skoðunarferð.
Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála. | 3.4. 2501011 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Garðprýði 1 - Deiliskipulagsbreyting. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1 að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Einnig lagt fram erindi lögmanns umsækjanda þar sem brugðist var við þeim athugasemdum sem borist höfðu. Skipulagsnefnd taldi að sjónarmið beggja aðila lægju ljós fyrir og að andmælaréttur hafi verið virtur á báða bóga. Í greinargerð deiliskipulags Garðahrauns eru sett fram markmið deiliskipulagsins. Þar segir í kafla 1.5. "Þar sem framkvæmdir eru heimilar samkvæmt skipulaginu er lögð rík áhersla á að halda sem best sérkennum svæðisins og vernda hraumyndanir eftir því sem nokkur kostur er." Enn fremur segir í kafla 2.1.2. um nýtingarhlutfall: "Stærðin takmarkast fyrst of fremst af mikilvægum umhverfisþáttum hverrar lóðar og er ekki sjálfgefið að þessi rýmilegu mörk (þ.e. uppgefið nýtingarhlutfall) gildi í öllum tilfellum." Í kafla 1.5. er vikið að þeim möguleika að skipta lóðum upp: "Gert er ráð fyrir þeim möguleika að lóðum Hrauns og Hrauntungu verði skipt í smærri lóðir, með sambærilegu skipulagi og hér er fjallað um". Ljóst er að ekki var horft til möguleika að lóð Hraungarða (Garðprýði 1) yrði skipt upp, skv. greinargerð deiliskipulagsins. Lóðin Garðprýði 1 er stærsta lóðin innan skipulagssvæðisins sem hefur verið skipulögð og stærri hluti hennar, allt að tveir þriðju, er skilgreindur sem svæði með hraunmyndunum sem taka þurfi tillit til við staðsetningu og útfærslu húss og lóðar. Það skýrist af því hve hraunmyndanir á lóðinni þar eru miklar og sérkennilegar og hafa áhrif á umhverfisgæði aðliggjandi húsa. Viðbrögð eigenda aðliggjandi lóða hafa verið mjög afdráttarlaus og hafa þeir gengið út frá því að þeir myndu njóta þeirra gæða sem í hraunmyndununum felast til frambúðar. Þeim hefur verið bent á að byggingarreitur sá sem nú er til staðar hefði minnkað umtalsvert samkvæmt tillögunni þó svo að lóðinni yrði skipt í tvær lóðir. Afstaða eigenda aðliggjandi lóða er óbreytt, þó svo að síðari tillagan sem grenndarkynnt var geri ráð fyrir húsi á öðrum stað sem liggur neðar í lóðinni. Í svo viðkvæmu umhverfi þar sem áhersla er lögð á að varðveita náttúruleg sérkenni landslags er mikilvægt að sátt náist um framkvæmdir sem hafa árhrif á þau gæði sem leitast er við að varðveita. Skipulagsnefnd taldi að framlagðar tillögur hafi ekki náð fram því markmiði og sé fullreynt að reyna að skapa sátt um þær. Í ljósi ofangreindra atriða hafnaði skipulagsnefnd grenndarkynntri tillögu. | 3.5. 2509095 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt N - Dsk.br. leikskóla- og þjónustulóð. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðir fyrir búsetukjarna og leikskóla verði felldar út enda gerir tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholt ráð fyrir sömu lóðum á öðrum stað. Afmörkun deiliskipulagssvæðis hefur verið felld að afmörkun tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholt. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | 3.6. 2409103 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholts að lokinni auglýsingu og skoðun umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á tillögunni: Einnar hæðar raðhús verða 18 í stað 11. Tveggja hæða raðhús verða 22 í stað 30. Parhús er fellt út úr tillögu. Íbúðareiningar verða 75 í stað 77. Gert er ráð fyrir staðsetningu dreifistöðvar rafmagns eins og minnst er á í umsögn Veitna. Ýmsar minniháttar lagfæringar gerðar á greinargerð að tillögu umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa. Með breytingum á gerðum raðhúsa er komið til móts við athugasemdir sem borist hafa. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | 3.7. 2410080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, rammahluta Vífilsstaðalands sem nær til háholts Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: Tákn fyrir svæði fyrir samfélagsþjónustu (4.05 S leikskóli) á háholti Hnoðraholts er fellt út. Iðnaðarsvæði (4.22 I, hitaveitutankar) á háholti Hnoðraholts er fellt út. Gert verður ráð fyrir svæði fyrir samfélagsþjónustu (4.22 S) þar sem núgildandi skipulag gerir ráð fyrir hitaveitutönkum. Þar sem að fyrir liggur að Veitur telja ekki þörf á að gera ráð fyrir svæði efst á holtinu fyrir hitaveitutanka gefst færi á að staðsetja leikskóla á stað sem hefur kosti umfram þann stað sem núgildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Lögun og stærð landnotkunarreitanna (4.04.Íb) og (4.18 Op) breytist lítillega. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts og tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður. Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni. Tillagan samþykkt óbreytt sem breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 4. 2601014F - Fundargerð leikskólanefndar frá 14/1 ´26. | Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029), 2.tl. Þróunarsjóður leikskóla 2026-2027 og 3.tl. leikskólar. Starfsáætlun 2024-2025. Umbótaáætlun 2025-2026.
Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 5. 2601021F - Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 16/1 ´26. | Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ.
Björg Fenger ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ og 6.tl. Menningardagskrá vor 2026.
Almar Guðmundsson ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ og 6.tl. Menningardagskrá vor 2026.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ.
Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 6. 2601039F - Fundargerð skipulagsnefndar frá 29/1 ´26. | | Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 7. 2601008F - Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 15/1 ´26. | Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. fjárhagsáætlun 2026 - grunnskólar, 2.tl. Þróunarsjóður grunnskóla 2026, 3.tl. þrepaskipt skólaþjónusta í leik- og grunnskólum Garðabæjar og 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.
Almar Guðmundsson ræddi 4.tl. gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.
Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 8. 2601012F - Fundargerð umhverfisnefndar frá 14/1 ´26. | | Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 9. 2601044F - Fundargerð velferðarráðs frá 30/1 ´26. | Gunnar Valur Gíslason ræddi 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti, 5.tl. endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks og 7.tl. farsæld barna.
Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| |
| 10. 2601374 - Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 19/1 ´26. | | Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 11. 2501405 - Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 10/11 og 10/12 ´25. | Gunnar Valur Gíslason ræddi fundargerð 10. desember 2025, 3.tl. hagræðingaraðgerðir í rekstri endurvinnslustöðva og 4.tl. undirbúningsfélag um byggingu hátæknibrennslu.
Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 12. 2601279 - Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 14/1 ´26. | Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. árangur af hagræðingaraðgerðum.
Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 13. 2601375 - Fundargerð stjórnar SSH frá 19/1 ´26. | | Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 14. 2601376 - Fundargerð Stefnuráðs byggðasamlaganna frá 7/11 ´25. | | Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 15. 2601544 - Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 23/1 ´26. | Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Skúlagata - endastöð, 2.tl. frítt fyrir ungmenni, 3.tl. Strætó.is, 4.tl. öryggismál vagna, 5.tl. nýtt félag og 6.tl. ársfundur og aðalfundur Strætó.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og 5.tl. nýtt félag.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og lagði fram svohljóðandi bókun: "Garðabæjarlistinn hvetur til þess að Garðabær feti í fótspor höfuðborgarinnar og styðji inni í stjórn Strætó að almenningssamgöngur verði gerðar gjaldfrjálsar fyrir öll börn á grunnskólaaldri. Áætlað er að það kosti sveitarfélagið rúmar 24 milljónir árlega. Í dreifðum bæ eins og Garðabæ er sérstaklega mikilvægt að auka aðgengi allra barna að strætó, svo þau geti ferðast sjálf um bæinn. Það eykur sjálfstæði barna samhliða því að minnka skutl og þar með umferð."
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og fundargerðina.
Ingvar Arnarson ræddi 2.tl. frítt fyrir ungmenni og fundargerðina.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina og 2.tl. frítt í strætó.
Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. frítt í strætó og fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 16. 2601508 - Fundargerð stjórnar SHS frá 9/1 ´26. | | Fundargerðin er lögð fram. | | |
|
| 17. 2408215 - Stofnun nýrra félaga Sorpu bs. vegna ESA máls. | Bæjarstjórn samþykkir tillögu sem felur í sér að SORPU bs. er heimilað að stofna tvö ný dótturfélög með takmarkaðri ábyrgð, sem munu taka yfir efnahagslega starfsemi Sorpu bs. í samræmi við sátt við ESA. Annars vegar er um að ræða félag sem annast mun móttöku rekstrarúrgangs og rekstur urðunar og hins vegar félag sem annast mun rekstur GAJA og meðhöndlun lífræns úrgangs.
| | |
|