| |
| 1. 2603328 - Hátún 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs | Lögð fram fyrirspurn vegna skólskála og skjólveggja við Hátún 1. Hvað skjólveggi varðar þá er Garðabær í þessu tilfelli ekki aðliggjandi lóðarhafi, nema á þeim hluta lóðarinnar sem snýr að húsagötunni Hátúni en leita skal samþykkis aðliggjandi lóðarhafa vegna frágangs á lóðarmörkum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við girðingu á lóðarmörkum sem er allt að 1,2 m á hæð og snýr að húsagötu. Hvað sólskála varðar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis vegna sólskála sem staðsettur er innan byggingarreits. Nái sólkáli útfyrir byggingarreit skal hámarksbreidd og lengd sólstofu vera 4 m, sjá ákvæði í deiliskipulagi Túnahverfis sem tekur á sólstofum. | | |
|
| 2. 2602468 - Vesturtún 17 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1 | | Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Vesturtún 17. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. | | |
|
| 3. 2305322 - Kumlamýri 24 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2 | | Lögð fram fyrirspurn um frágang á lóð og lóðarmörkum. Máli vísað til frekari skoðunar. | | |
|
| 4. 2305315 - Kumlamýri 22 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2 | | Lögð fram fyrirspurn um frágang á lóð og lóðarmörkum. Máli vísað til frekari skoðunar. | | |
|
| 5. 2604185 - sjóvarnir við Golfklúbb Álftaness | | Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi vegna sjóvarna við Golfklúbb Álftaness. Um lausnir til bráðabirgða er að ræða. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir bráðabirgða sjóvörnum við Golfklúbb Álftaness sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. | | |
|
| 6. 2604002 - Breiðás 11 - Fyrirspurn til umhverfissviðs | Lögð fram fyrirspurn um fjölgun bílastæða að lóðinni Breiðás 11 úr þremur í fjögur. Skipulagsstjóri vísar tillögu að deiliskipulagsbreytingu þess efnis til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Breiðás 9 og 10. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. | | |
|
| 7. 2601206 - Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2 | Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Hraunhóla 6a sem viðbrögð við athugasemdum sem bárust við grenndarkynningu. Hús hefur verið lækkar sem nemur einni hæð og bílageymsla er alfarið innan byggingarreits. Bygging er því í fullu samræmi við deiliskipulag Hraunsholts eystra. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Um ákörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II bið samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. | | |
|
| 8. 2603407 - Espilundur 5 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1 | Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsóknum byggingarleyfi við Espilund 5. Umsóknin felur í sér viðbyggingu, þar sem áður var samþykktur sólskáli. Þar sem viðbygging stendur utan gildandi byggingarreits kallar umsóknin á óverulega breytingu á deiliskipulagi Lunda. | | |
|
| 9. 2603057 - Útholt 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2 | | Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. | | |
|
| 10. 2603058 - Útholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2 | | Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. | | |
|
| 11. 2603213 - Búsetukjarni við Haustbraut - Lagnir og jarðvinna - Framkvæmdarleyfi | | Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi jarð- og lagnavinnu á búsetukjarnalóð á háholti Hnoðraholts. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. | | |
|
| 12. 2306493 - Lautargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2 | Lögð fram umsókn um breytingu á áður samþykktum aðaluppdráttum fyrir Lautargötu 1. Breytingin felur í sér til að mynda tilfærslu á aðalinngangi af 2. hæð, niður á 1. hæð. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti. | | |
|
| 13. 2107272 - Maríugata 5 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1 | Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna svalaskjóls á svalagang 5. hæðar fjölbýlishúss við Maríugötu 5. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. | | |
|