Til bakaPrenta
Skipulagsnefnd Garðabæjar - 10

Haldinn í Sveinatungu, Garðatorgi,
13.08.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger aðalmaður,
Ásgeir Sigurður Ágústsson aðalmaður,
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir aðalmaður,
Agla Eir Vilhjálmsdóttir aðalmaður,
Einar Þór Einarsson aðalmaður,
Guðjón Pétur Lýðsson áheyrnarfulltrúi,
Kjartan Atli Kjartansson áheyrnarfulltrúi,
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri, Anna Guðrún Gylfadóttir byggingarfulltrúi, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs.
Fundargerð ritaði: Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2607298 - Borgarás 10 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarheimild fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Borgarási 10 sem gerir ráð fyrir útitröppum við norðvesturgafl hússins.
Skipulagsnefnd metur umsóknina sem óverulega breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit sem nemur flatarmáli útitröppu. Þar sem að deiliskipulagsuppdráttur Hraunsholts vestra sýnir útlínur húsa að Borgarási 10 og 12 lýtur nefndin svo á að um ígildi byggingarreits sé að ræða. Útbúa skal breytingaruppdrátt deiliskipulags sem sýnir stækkaðan byggingarreit sem nemur útlínum hússins til norðvestur auk útitröppu eins og umsóknaruppdrættir sýna.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Borgarási 4,6,8 og 12 og Melási 7,9 og 11.
2. 2605411 - Teistunes 1 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. 4 erindi með athugasemdum hafa borist. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði. Skipulagsnefnd óskar eftir því að ítarlegri gögn verði send þeim sem grenndarkynning nær til þannig að viðkomandi aðilar geti betur áttað sig á umfangi tillögunnar. Veita skal 4 vikna frest til athugasemda frá því að gögn berast.
3. 2405208 - Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingum og starfsemi í útihúsum á Spildu A í landi Grundar við austanverða Breiðabólsstaðatjörn að lokinni grenndarkynningu.
5 erindi með athugasemdum hafa borist og þau lögð fram.
Uppdráttum og athugasemdum vísað til umhverfissviðs til úrvinnslu.
4. 2608047 - Örnámskeið - Skipulagsnefnd
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur M.Sc. hjá Eflu kynnti nefndarmönnum samantekt um viðfangsefni skipulagsnefnda sem samanstanda m.a. af mótun skipulagstillagna, skipulagsferli, umhverfismati áætlana og öðrum áskorunum.
Fundargerð
5. 2607023F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12
5.1. 2505198 - Móaflöt 12 - Umsókn um byggingaráform - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi á breytingum á einbýlishúsinu að Móaflöt 12. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
5.2. 2607241 - Vetrarbraut 19, dsk breyting stærð lóðar
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir því að lóðin Vetrarbraut 19 minnki úr 5.641 m2 í 3.955 sem nemur svæði innan lóðar þar sem gert er ráð fyrir settjörn fyrir ofanvatn. Um leið hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 2,5 í 3,6 þar sem heimilað byggingarmagn lóðarinnar er það sama og fyrir breytingu.
Einnig gerir breytingartillagan ráð fyrir því að rampur fyrir bílakjallara verði bæði á lóðinni annarsvegar Vetrarbraut 17 og Vetrarbraut 19 hinsvegar en ekki sameiginlegur rampur eins og skipulagið gerir ráð fyrir.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
6. 2607014F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 11
6.1. 2604571 - Steinprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir að einbýlishúsi að Steinprýði 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Hluti byggingar nær lítilsháttar út fyrir byggingarreit en að öðru leyti samræmast uppdrættir ákvæðum deiliskipulags Garðahrauns. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar, hvað ofangreint atriði varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
7. 2607007F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 10
7.1. 2510434 - Nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040, nr. 1446/2025 -Lýsing
Lögð fram tillaga að endurskoðuðu aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar sem mun gilda fyrir tímabilið 2025-2040.
Gerð er athugasemd við að brautin sem tengir saman mislæg gatnamót Kaldársselsvegar við "Ofanbyggðaveg" og mislæg gatnamót við Reykjanesbraut sé ekki skilgreind sem stofnbraut eins og aðalskipulag Hafnarfjarðar sem gilti fyrir tímabilið 2005-2025 gerði ráð fyrir við samþykkt þess.
Einnig er gerð athugasemd við að aðalskipulagstillagan geri ráð fyrir jarðgöngum Reykjanesbrautar um Setbergshamar sem gildandi Aðalskipulag Garðarbæjar 2016-2030 gerir ekki ráð fyrir. Þegar tillögur um útfærslu endurbóta á stofnbrautakerfi á sveitarfélagamörkum Hafnarfjarðar og Garðabæjar liggja fyrir verður hægt að vinna að tillögum að breytingum á aðalskipulagsáætlunum beggja sveitarfélaga.
Garðabær leggur áherslu á mikilvægi góðrar samvinnu og samráðs sveitarfélaganna og að í aðalskipulaginu verði skýrt kveðið á um að virkt og tímanlegt samráð milli nágrannasveitarfélaga verði í fyrirrúmi vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu eða framkvæmda sem gæta áhrifa á sveitarfélagamörkum. Mikilvægt er að samræma lausnir og tryggja að ákvarðanir stuðli að skilvirkni, góðri nýtingu lands og innviða og þjónustustigi íbúa beggja sveitarfélaga.

7.2. 2606363 - Garðprýði 6 - Umsókn um byggingar-leyfi - Fl. 2
Lögð fram tillaga að einbýlishúsi á lóðinni Garðprýði 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Bygging fer lítilega út fyrir byggingarreit á 4 stöðum og ekki er að öllu leyti tekið tillit til hraunmyndanar sem skilgreind er á deiliskipulagsuppdrætti hvað staðsetningu bílastæða varðar. Um er að ræða lága laut í hrauni.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Garðprýði1, 3, 4 og 8. Ef þeir sem grenndarkynning nær til staðfesta með undirritun sinni á uppdrætti að þeir geri ekki athugasemd við tillöguna er unnt að stytta frest til að skila inn athugasemdum.
8. 2606050F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 9
8.1. 2606006 - Landakot - Stöðuleyfi gámur - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um heimild fyrir 20 ft gám á lóð í samræmi við framlögð gögn. Tilgangur stöðuleyfis er tímabundin geymsla á verkfærum, byggingarefni og búslóð á lóð vegna tiltektar og almenns viðhalds á eigninni. Gámurinn verður fjarlægður að verki loknu. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi til 12 mánaða.
8.2. 2601086 - Kjarrprýði 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsið Kjarrprýði 1. Hámarkshæð húss fer lítilega upp fyrir leyfilega hámarkshæð og hefur hönnuður gert grein fyrir ástæðum þess. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2020 sbr. 3. mgr. sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
8.3. 2606363 - Garðprýði 6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna einbýlis við Garðprýði 6. Skipulagsstjóri vísar til umsagnar hjá skipulagshöfundi.
8.4. 2605452 - Steinprýði 8 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
8.5. 2606139 - Melás 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir byggingarreit þar sem nú er einnar hæðar sólskáli við Melás 8.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi 44. gr. sömu laga. Í samræmi við 3. mgr. sömu greinar er tímabil grenndarkynningar stytt þar sem þeir sem grenndarkynningin nær til hafa lýst yfir með undirskrift sinni að þeir gera ekki athugasemdir.
Breytingin skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
8.6. 2606315 - Melás 9 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Lögð fram fyrirspurn um byggingu tveggja smáhýsa við Melás 9 og 11, 15 m² hvort.
Fjarlægð milli smáhýsis við Melás 11 frá glugga er minni en 3 m, líkt og grein 9.7.6 í byggingarreglugerð kveður á um.
Skipulagsstjóri getur því ekki fallist á smáhýsi á þessum stað við Melás 11.
Smáhýsið við Melás 9 rúmast aftur á móti innan marka byggingarreglugerðar.
8.7. 2606634 - Haukanes 25 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um vegg á lóðarmörkum við Haukanes 25. Skipulagsstjóri bendir á að skv. deiliskipulagi Arnarness er hámarkshæð veggja og girðinga sem snúa að opnum svæðum og göngustígum 1,5 m. Miðað er við hæð á lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri bendir jafnframt lóðarhafa á að ef girðing eða veggur er hærri en ákvæði deiliskipulags kveða á um skal færa girðingu inn á lóð sem um nemur mismun frá leyfilegri hæð og raunhæð veggjar.
8.8. 2606355 - Smáraflöt 24 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um að breyta yfirbyggðu bílskýli í lokaðan bílskúr við Smáraflot 24.
Skipulagsstjóri bendir á að eftirfarandi fyrirspurn er ekki í samræmi við deiliskipulag Flata hvað varðar lengd á brunagafli bílskúrs og einnig segir í ákvæðum deiliskipulags að bílgeymsla skuli byggð í framhaldi af bílastæðum á deiliskipulagsuppdrætti. Á deiliskipulaguppdrætti eru bílastæðin 7 m en fyrirspurn felur í sér að bílastæðin verði aðeins 5 m.
Eftirfarandi fyrirspurn kallar því á breytingu deiliskipulags Flata.
8.9. 2606198 - Iðnbúð 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Iðnbúð 3. Viðbygging nær út fyrir uppgefinn byggingarreit í deiliskipulagi Búða og kallar framkvæmd því á breytingu á deiliskipulagi Búða.
8.10. 2606044 - Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
Lögð fram fyrirspurn vegna bílskúrs við Bæjargil 3. Skipulagsstjóri vísar umsókn til umsagnar hjá skipulagshöfundi.
8.11. 2601487 - Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Molduhrauns 6 og 10 að lokinni auglýsingu, engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
8.12. 2502253 - Vorbraut 8 - 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir við Vorbraut 8-12 breytingin felur í sér stækkun á geymslurýmum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
8.13. 2606212 - Keldugata 13 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um lóðarfrágang við Keldugötu 13.
Skipulagsstjóri bendir á að skv. deiliskipulagi skal girðing á lóðarmörkum við húsagötu ekki vera hærri en 90 cm. Einnig skal girðing hafa 50% gegnsæi.
Varðandi steypt bílaplan vantar lóðaruppdrátt með vatnshalla sem sýnir fram á blágrænar regnvatnslausnir innan lóðar.
8.14. 2606258 - Víkurgata 29 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna geymslu við Víkurgötu 29. Þar sem geymsla er út fyrir byggingarreit kallar umsókn á breytingu deiliskipulags Urriðaholts 1.áfangi vesturhluti.
9. 2608004F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 13
9.1. 2608066 - Framkvæmdarleyfi - Arnarnesvegur einhalla hraðahindrun
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi vegna framkvæmda á Arnarnesvegi vegna einhalla hraðahindrunar á göngubraut yfir Arnarnesveg. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta