| |
| 1. 2511540 - Ungmennahús Garðabæjar | |
Kynning á starfsemi og aðstöðu Torgsins ungmennahúss Garðabæjar. Ragnhildur Jónasdóttir forstöðumaður fór yfir skipulag og umfang starfseminnar sem er til húsa á Garðatorgi 1, 2. hæð við hlið Gróskusalarins. Torgið er með fasta opnunartíma þrjú kvöld í viku: þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga 17-22 með einhverja tiltekna dagskrá en annars opið hús.
Fyrirhugað er að byrja með klúbbastarfsemi en nú þegar er teikniklúbbur á fimmtudögum sem er vel sóttur. Á Torginu starfa 5 tímavinnustarfsmenn sem skipta vöktum, einn starfsmaður í 30% auk Verkefnastjóra. Bergið Head Space er með viðtalstíma á mánudögum fyrir 12 til 25 ára. Á næstu tveim vikum verða Hinsegin opnanir opnaðar á Torginu fyrir félagsmiðstöðvar unglinga í Garðabæ, en einnig opið fyrir unglinga annarra sveitarfélaga. Aldur 13-17 ára.
| | |
|
| 2. 2008396 - Forvarnir - Dale Carnegie námskeið | |
ÍTG leggur til að samningur við Dale Carnegie verði endurnýjaður. Farið var yfir samstarf við Dale Carnegie sem hófst 2012, vegna endurnýjunar á samningi við fyrirtækið. Lagt er upp með að Garðabær niðurgreiði námskeiðið um 30.000 fyrir hvern þátttakandi og leggi auk þess til aðstöðu til námskeiðahalds í Garðaskóla. Næsta námskeið hefst 22. október 2026. Þetta er skemmtilegt námskeið sem ýtir undir frumkvæði, eflir leiðtogahæfileika og eykur sjálfstraust og samkennd þátttakenda. Að hafa jákvæða sjálfsmynd og trú á sjálfan sig hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og í dag með síauknum samanburði við jafnaldra. Á þessu námskeiði læra börn að þekkja sig sjálf betur, setja sér markmið og þjálfa færni sem gerir þeim kleift að ná markmiðunum. | | |
|
| 3. 2608520 - Stjarnan og PFG | |
ÍTG tók fyrir erindi Stjörnunnar og Pílufélags Garðabæjar vegna samstarfs þeirra og væntanlegrar inngöngu í Stjörnuna. Formanni og íþróttafulltrúa falið að taka samtalið við PFG og Stjörnuna og móta tillögu fyrir næsta fund. | | |
|
| 4. 2610008 - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar | |
| ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Stefáns Gunnlaugs Jónssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026. | | |
|
| 5. 2609629 - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar | |
| ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Alvars Loga Helgasonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026. | | |
|
| 6. 2609628 - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar | |
| ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Brynjars Smára Elvarssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026. | | |
|
| 7. 2609621 - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar | |
| ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Arons Friðriks Georgssonar vegna kraftlyftingamóts V-Evrópu í Luxemburg 17. til 21. september 2026. | | |
|
| 8. 2609447 - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar | |
| ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Bergþóru Emmu Johnsen vegna undankeppni EM í strandblaki U17 í Cardiff 30 júlí 2026. | | |
|
| 9. 2609416 - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar | |
| ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Önnu Guðrúnar Yu Þórbergsdóttur vegna NM ungmenna í sveigboga U21 í Tampere, Finnlandi 1.-6. júlí | | |
|
| 10. 2609300 - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar | |
| ÍTG Samþykkir ferðastyrk kr. 50.000 til Huldu Kristínar Björnsdóttur vegna EM U18 í blaki 30.6 til 10.7.2026. | | |
|