Til bakaPrenta
Bæjarráð Garðabæjar - 35. (2230)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
13.10.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Margrét Bjarnadóttir aðalmaður,
Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Birkir Guðlaugsson varamaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Kjartan Atli Kjartansson áheyrnarfulltrúi,
Hlynur Elías Bæringsson áheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Guðný Hrönn Antonsdóttir samskipta- og kynningarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2106252 - Víkurgata 4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Elíasi Sæmundssyni, kt. 100272-4829, leyfi fyrir breytingum áður samþykktra aðaluppdrátta einbýlishúss að Víkurgötu 4. Um er að ræða ýmsar breytingar, nýjan glugga og færslu á sorpi.
2. 2101260 - Víkurgata 27 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fyrir einbýlishús að Víkurgötu 27.
3. 2606044 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargils vegna lóðarinnar við Bæjargil 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu, vegna Bæjargils 3. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.
4. 2605038 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðarinnar við Kaldakur 6.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Kaldakri 6 til að breyta gluggum á 2 hliðum húss, setja skyggni yfir glugga á sömu hliðum ásamt að klæða hluta veggja með álgrind, sorpskýli stækkað. Að öðru leyti er hús óbreytt, stærðir breytast ekki.
Umsókn kallar á breytingu deiliskipulags Akra sem skipulagsnefnd metur sem óverulega breytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Kaldakurs 3, 4, 5, 7 og 8 sem og Hvannakurs 5 og 7. Í samræmi við 3. mg. 44. gr. sömu laga er skipulagsstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni á uppdrátt lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytingartillöguna.
5. 2607139 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðarinnar við Skeiðakur 2.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Akra vegna Skeiðakurs 2 sem gerir ráð fyrir nýtingu á gluggalausum kjallararýmum og útitröppu að Skeiðakri 2 að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.
6. 2610057 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholt norður vegna lóðanna við Vorbraut 8-12.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til svæðis í götu norðan við fjölbýlishúsalóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12. Gert er ráð fyrir lóð fyrir djúpgáma við götu þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum samhliða götu. Tillagan gerir ráð fyrir því að tvö bílastæði verði innan lóðar fyrir þau stæði sem víkja við götu.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar 9, 11, 13, 14 og 15.
7. 2607085 - Niðurstöður Spretthóps um lífsgæðakjarna.
Lögð fram skýrsla spretthóps um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri.

Bæjarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar í velferðarráði og öldungaráði.
8. 2606674 - Innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla.
Lagt fram svarbréf Mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna erindis Garðabæjar um úthlutun framhaldsskólaplássa til nemenda sem fá ekki skólavist samkvæmt fyrsta, öðru eða þriðja vali. Ráðuneytið þakkar Garðabæ fyrir gagnlegar ábendingar og vilja til samstarfs. Ábendingar Garðabæjar verða hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi þróun innritunarferilsins með það að markmiði að styðja við farsæld nemenda og draga úr hættu á brotthvarfi úr námi.

Bæjarráð vísar málinu til fræðslu- og frístundasviðs.
9. 2603213 - Opnun tilboða í verkið - Búsetukjarni við Haustbraut.
Eftirfarandi tilboð samkvæmt tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Haustbraut 2 - búsetukjarni":

1. Húsameistari ehf., kr. 597.710.210 (109,24%).
2. AI-verk ehf., kr. 483.878.823 (88,43%)
3. Verkeining ehf., kr. 548.966.320 (100,33%).
4. Rætur verktakar ehf., kr. 628.191.120 (114,81%).
5. VHE ehf., kr. 438.134.913 (80,07%).
6. Aðalvík ehf., kr. 495.794.301 (90,61%).
7. Tindhagur ehf., kr. 579.358.588 (105,88%).
8. Landris Byggingar ehf., kr. 449.933.747 (82,23%).
9. Atals verktakar ehf., kr. 534.374.000 (97,66%).
10. All Verk ehf., kr. 488.708.727 (89,32%).
11. K16 ehf., kr. 587.274.487 (107,33%).
12. Probygg ehf., kr. 488.407.564 (89,26%).
13. E. Sigurðsson ehf., kr. 494.461.129 (90,37%).
14. Sérverk ehf., kr. 509.72.672 (93,16%).
15. Borg byggingalausnir ehf., kr. 540.372.461 (98,76%).
16. Afltak ehf., kr. 583.160.065 (106,58%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa er kr. 547.170.185. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda VHE ehf., að fjárhæð kr. 438.134.913, sem er 80,07% af kostnaðaráætlun.

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
10. 2512119 - Endurskoðun hámarkshraða í Garðabæ.
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir skýrslu Eflu verkfræðistofu um endurskoðun leyfilegs hámarkshraða í Garðabæ. Verkefnið nær til gatnakerfis sem er í eigu Garðabæjar, þ.e. ekki á vegum þar sem veghaldari er Vegagerðin.
Skýrslan er unnin með það að markmiði að stuðla að auknu umferðaröryggi og bæta aðstæður fyrir óvarða vegfarendur. Gerðar hafa verið breytingar á tillögunni, að teknu tilliti til athugasemda, m.a. frá lögreglunni. Tillagan gengur út á að skipta innleiðingu upp í áfanga, þ.a. fyrsti áfanginn taki til Urriðaholts, Kauptúns, Hnoðraholts, Vetrarmýrar og Molduhrauns. Samhliða breytingum á hámarkshraða verði unnið að greiningu og forgangsröðun hraðatakmarkandi aðgerða í tengslum við uppfærslu umferðaröryggisáætlunar Garðabæjar.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur í samræmi við 1. og 3.mgr. 84.gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og felur umhverfissviði að auglýsa breytingarnar í Stjórnartíðindum og undirbúa framkvæmd þeirra.
11. 2610095 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2027.
Lögð fram til afgreiðslu gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem samþykkt var á stjórnarfundi 2. október 2026.

Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12. 2610120 - Framlag Garðabæjar til Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2027.
Lagt fram bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins ásamt fylgigögnum þar sem fram kemur að hlutdeild Garðabæjar árið 2027 er áætluð kr. 9.060.824.

Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

13. 2610148 - Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun nr. 106 1999 (lagfæringar), 156. mál, dags. 08.10.26.
Lagt fram.
14. 2610103 - Beiðni Samtaka um Kvennaathvarf um rekstrarstyrk fyrir árið 2027, dags. 06.10.26.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2027.
15. 2610116 - Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta árið 2027, dags. 07.10.26.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2027.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta