| |
| 1. 2510244 - Menningarviðburðir í grunn- og leikskólum 2025-2026 | | Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi Garðabæjar, sagði frá menningarviðburðum sem nemendum í skólum bæjarins verður boðið upp á, skólaárið 2025-2026. Skólanefnd lýsir ánægju sinni með metnaðarfulla dagskrá. | | |
|
| 2. 2505520 - Gervigreindarstefna Garðabæjar | | Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, verkefnisstjóri kennslu- og upplýsingatækni kynnti gervigreindarstefnu Garðabæjar. | | |
|
| 3. 2405510 - Viðurkenningar í skólastarfi | | Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður skólanefndar fór yfir dagskrá Menntadags Garðabæjar og kynnti þau verkefni sem fengu viðurkenningu. Umræður voru um fyrirkomulag Menntadagsins, áherslur og þróun dagskrár. | | |
|
| 4. 2510245 - Þróunarsjóður grunnskóla 2026 | | Umræður voru um áhersluþætti vegna úthlutunar úr Þróunarsjóði grunnskóla 2026. Formanni skólanefndar og fræðslu- og menningarsviði er falið að útfæra áherslur og auglýsa. | | |
|
| 5. 2511443 - Erindi til skólanefndar frá Sjálandsskóla | | Skólanefnd samþykkti beiðni Sjálandsskóla um færslu á skólaslitadegi frá 10. júní til eftirmiðdags 9. júní, vegna námsferðar starfsfólks skólans. Skólaslit fara fram eftir skólalok þann 9. júní. Skólastjóra Sjálandsskóla er falið að upplýsa forráðafólk um breytinguna. | | |
|
| 6. 2511429 - Kynning og samtal við skólastjórnendur Sjálandsskóla | | Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Sjálandsskóla fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju sinni með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti. | | |
|