| |
| 1. 2604031 - Vígsla fundarýma og setustofu á 2.h í Miðgarði | |
| Fundarými og borðsalur á 2. hæð Miðgarðs voru formlega tekin í notkun 8. apríl sl. Aðstöðunni er ætlað að vera stoðrými fyrir starfsemi félagasamtaka í Garðabæ. Þá er jafnframt lögð áhersla á að 2. hæð Miðgarðs þróist sem lifandi miðstöð þar sem kynslóðir mætast, efla tengsl sín og njóta samveru. Af þessu tilefni var 49. fundur ÍTG á kjörtímabilinu haldinn í hinu nýja rými. | | |
|
| 2. 2404116 - Íþróttaþing Samráðsfundur Íþróttafélaga Garðabæjar | |
| ÍTG þakkar þátttakendum á íþróttaþingi og vinnustofu íþrótta- og tómstundafélaga í Garðabæ, sem fram fór í Miðgarði 23. mars sl., fyrir gagnlegar umræður. Á þinginu kom fram að í Garðabæ væri öflugt og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, þar sem 22 íþrótta- og tómstundafélög starfa í bænum. Rætt var um mikilvægi þess að innviðir og aðstaða þróist áfram í góðu samræmi við fólksfjölgun og þarfir samfélagsins. Jafnframt var áréttað að þjónustan þurfi að ná til allra hópa, svo sem fatlaðra barna og ungmenna, og að áfram verði unnið að skýrri framtíðarsýn, bættri samhæfingu og auknu samstarfi milli félaganna. | | |
|
| 3. 2604030 - Sumarnámskeið barna 2026 | |
Upplýst var um framsetningu kynninga á sumarnámskeiðum barna í Garðabæ 2026 á vefnum "fristund.is". Unnið er að því að aðlaga vefinn að þörfum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi útlit og leitarmöguleika. Þannig eiga öll námskeið sem sett eru upp hjá félögunum í Abler eða Völu að birtast sjálfkrafa inni í fristund.is. Foreldrar geta þá leitað að námskeiðstilboðum eftir póstnúmeri, tímabilum, áhugasvið og aldursviðmiði. Stefnt er að því að full virkni verði komin á fristund.is 23. apríl nk. | | |
|
| 4. 2601351 - Hönnun - Útboð -Lambamýri 2. áfangi - Frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni | |
| Lögð var fram til kynningar útboðslýsing vegna innanhússfrágangs fyrir Félagsmiðstöð fatlaðra ungmenna í Garðabæ og frístundaþjónustu að Lambamýri 1?3. Málið var áður tekið fyrir á fundi bæjarráðs 17. mars sl., þar sem samþykkt var að fela umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar. Félagsmiðstöð eldri borgara í Lambamýri hefur verið tekin í notkun og gefist vel. Samkvæmt útboðslýsingu er gert ráð fyrir verklokum 1. september 2026. Íþrótta- og tómstundaráð fagnar öflugu félagsstarfi í bænum og lýsir ánægju með að Félagsmiðstöð fatlaðra ungmenna verði tekin í notkun í Garðabæ í haust. | | |
|