Til bakaPrenta
Bæjarráð Garðabæjar - 43. (2191)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
25.11.2025 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Sigríður Hulda Jónsdóttir varaformaður,
Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Rakel Steinberg Sölvadóttir varaáheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2507256 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029)
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir tillögu að gjaldskrá sorpgjalds sem byggir á því að íbúar greiði samkvæmt gjaldskrá raunkostnað fyrir þjónustu við losun heimilisúrgangs, sbr. lög 103/2021 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu breytingum á gjaldskrám.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2026-2029.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu breytingum sem orðið hafa á fjárhagsáætlun frá fyrri umræðu um fjárhagsáætlunina sem fram fór í bæjarstjórn þann 6. nóvember 2025.

Gert er ráð fyrir að á fundi bæjarráðs 2. desember nk. verði lagðar fram tillögur að breytingum ásamt frumvarpi að fjárhagsáætlun með breytingum. Síðari umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 4. desember nk.

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
2. 2509343 - Skólabraut 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 57016-6109, leyfi fyrir færanlegum kennslustofum, staðsettum við norðurhlið Hofstaðaskóla.
3. 2010078 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis. Tillagan hefur verið í mótun undanfarna mánuði í samráði við ábúendur í Garðahverfi.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti:
Almennar breytingar:
-Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu.
-Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum.
-Nýjar lóðir verða um 900 m², staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs eða vegna fornminja.
-Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt.
Stígar og aðgengi:
-Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði.
-Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju.
-Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag.
-Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi.
-Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn.
Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur:
-Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll.
-Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð.
-Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað.
-Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð:
-Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum.
-Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m2 í stað 80 m2.
-Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl.
-Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins.
-Kvöðum um fornleifar er breytt.
-Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti.
-Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti.

Skipulagsnefnd samþykkti með þremur atkvæðum að vísa breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 41.gr. skipulagslagslaga nr. 123/2010 og sbr. 1. mgr. 43.gr. sömu laga.
4. 2010080 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og er í samræmi við tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Tillaga að breytingu gerir ráð fyrir landnotkun fyrir samfélagsþjónustu á lóð Grænagarðs í samræmi við hugmynd um skólastarfsemi á lóðinni.
Skipulagsnefnd samþykkti með þremur atkvæðum að vísa tillögunni með ofangreindri breytingartillögu til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynna skal tillögu samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
5. 2305550 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Nýhöfn 1-5, breyting á bílastæðum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Sjálands sem nær til lóðarinnar Nýhöfn 1-5 og svæðis vestan við lóðina að lokinni auglýsingu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Athugasemd lýtur mest að atriðum sem varða umferð og yfirborðsútfærslu gatna og gatnamóta. Skipulagsnefnd taldi að mögulegt væri að gera einhverjar úrbætur sem kalli þó ekki á breytingu deiliskipulags. Skipulagsnefnd taldi að ekki væri svigrúm til þess að fella út bílastæði úr deiliskipulagi til að koma til móts við sjónarmið um greiðfærari götu í Löngulínu enda varðar það grundvallar hugmynd deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd vísaði athugasemd til umhverfissviðs til skoðunar.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta frá auglýstri tillögu sem breytingu á deiliskipulagi Sjálands í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 2510434 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025-2040, nr. 1446/2025 -Lýsing.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 21. nóvember 2025 varðandi tillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi Hafnarfjarðar, sem hefur verið vísað til forkynningar.
Embættismenn og ráðgjafar Garðabæjar og Hafnarfjarðar hafa undanfarið verið í gagnlegu samráði vegna tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til stígakerfis sem er því í mótun beggja vegna sveitarfélagsmarka.
Garðabær ítrekar þær athugasemdir sem skipulagsstjóri Garðabæjar gerði við tillögu að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar og nær til Hrauns vestur en þar segir m.a.:
"Þær skipulagsbreytingar sem boðaðar eru í tillögu að rammahluta aðalskipulags Hafnarfjarðar sem nær til Hrauna vestur eru mjög umfangsmiklar svo vægt sé til orða tekið. Garðabær telur jákvætt að byggðin styrki áform um öflugar almenningssamgöngur um samgöngu-og þróunarás um Hafnarfjarðarveg en hefur um leið áhyggjur af stöðu mála hvað áhrif á umferðarkerfi varðar. Á meðan að ekki liggur fyrir stefna um útfærslur á stofnbrautakerfinu sem tengir saman Hafnarfjarðarveg, Álftanesveg, Reykjanesbraut og Flóttamannaveg er erfitt að taka afstöðu til þátta eins og byggingarmagns, íbúðafjölda, umferðarflæðis og landnotkunar almennt. Tekið er undir tillögu svæðisskipulagsnefndar um að áhersla sé lögð á mikilvægi þess að í komandi skipulags-og uppbyggingarferli sé virkt samtal við Vegagerðina og nærliggjandi sveitarfélögum um hönnun og útfærslu aðgerða sem líklegar eru til að draga úr álagi skv. samgöngumati."

Skipulagsnefnd hefur ekki frekari ábendingar á þessu stigi en áskilur sér allan rétt til þess að gera það á síðari stigum aðalskipulagsferlis.
7. 2511417 - Samkomulag um Vífilsstaði.
Kynnt minnisblað um skipulag og enduruppbyggingu Vífilsstaða, ásamt drögum að samkomulagi milli Fjármála- og efnahagsráðuneytisins fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands og Garðabæjar um framtíðarþróun eigna og lóða á Vífilsstöðum.

Á grundvelli samkomulagsins hafa aðilar ákveðið að vinna sameiginlega að frekari þróun og enduruppbyggingu á svokölluðum Vífilsstaðareit.

Fyrst um sinn verður lögð áhersla á að ganga frá deiliskipulagi fyrir afmarkaðar lóðir sem nær yfir Spítalaveg 1-3, sem endurskipulagt verður undir verslunar- og þjónusturými með möguleikum á viðbótaruppbyggingu.
Á grundvelli uppfærðs deiliskipulags fyrir Spítalaveg 1-3 mun ríkið hefja opið söluferli á fasteignum innan þess svæðis undir breytta starfsemi í samstarfi við Garðabæ. Einnig er stefnt að því að hefja sölu á svokölluðu Búshúsi við Spítalaveg 5. Leitast verður við að ganga til samninga við aðila sem hefur fjárhagslega getu til að umbreyta fasteignum undir breytta starfsemi að teknu tilliti til menningarsölulegs gildi þeirra, svo sem þjónustutengda starfsemi sem eykur aðdráttarafl svæðisins og stuðlar að mannlífi og virkni.
Við deiliskipulagsgerðina verða einnig skilgreindir sérstakir byggingarreitir fyrir atvinnustarfsemi á lóðum í nánd við Spítalaveg 1-3 og verða þeir að hluta eða öllu leyti boðnir til sölu samhliða söluferli á Spítalavegi 1-3

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samkomulag og að fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samkomulagið fyrir hönd Garðabæjar.
8. 2511355 - Erindi Umhverfis- og orkustofnunar varðandi tillögu að starfsleyfi fyrir Sorpu bs. á Álfsnesi, dags. 10.11.25.
Lagt fram.
9. 2511387 - Erindi innviðaráðuneytisins varðandi opinbera grunnþjónustu - Leiðbeiningar um mótun og framkvæmd stefna, dags. 19.11.25.
Lagt fram.
10. 2412296 - Samantekt innviðaráðuneytisins á kortlagningu aðgerða sveitarfélaga á verkefnum á sviði umhverfismála, dags. 19.11.25.
Lögð fram samantekt Innviðaráðuneytisins um markvissari árangur á sviði umhverfis- og loftlagsmála - kortlagning á aðgerðum sveitarfélaga.
Bæjarráð vísar samantektinni til skoðunar á umhverfissviði og til umfjöllunar í umhverfisnefnd.
11. 2511424 - Fundargerð aðalfundar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 14. nóvember 2025.
Lögð fram.
12. 2511423 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi starfs- og fjárhagsáætlun SSH, dags. 20.11.25.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026.
13. 2511431 - Erindi frá Sögufélagi Garðabæjar, dags. 21.11.25.
Lagt fram erindi Sögufélags Garðabæjar, þar sem lýst er yfir vilja sögufélagsins til að liðsinna Garðabæ við söfnun, varðveislu og miðlun sögulegra gagna.
Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar hjá þjónustu- og þróunarsviði.
14. 2511271 - Bréf Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um innleiðingu landsbyggðarmats í stefnumótun og lagasetningu stjórnvalda, 175. mál., dags. 14.11.25.
Lagt fram.
15. 2511168 - Viðauki um samræmda móttöku flóttafólks.
Sviðsstjóri velferðarsviðs gerði grein fyrir drögum að viðauka III við samning um samræmda móttöku flóttafólks.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka III við þjónustusamning milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Garðabæjar um samræmda móttöku flóttafólks, þannig að einstaklingar í samræmdri móttöku verði 100 á árinu 2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta