Til bakaPrenta
Bæjarráð Garðabæjar - 5. (2200)

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
10.02.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger formaður,
Sigríður Hulda Jónsdóttir varaformaður,
Hrannar Bragi Eyjólfsson aðalmaður,
Þorbjörg Þorvaldsdóttir aðalmaður,
Brynja Dan Gunnarsdóttir aðalmaður,
Guðlaugur Kristmundsson áheyrnarfulltrúi,
Almar Guðmundsson bæjarstjóri, Lúðvík Örn Steinarsson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs, Svanhildur Þengilsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Linda Udengård sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Ágúst Þór Guðmundsson sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs, Guðný Hrönn Antonsdóttir samskipta- og kynningarfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Örn Steinarsson, sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601138 - Gæða kennslustundir - innleiðing gæða kennslustunda í grunnskóla í Garðabæ.
Edda Björg Sigurðardóttir grunn- og tónlistarskólafulltrúi kynnti innleiðingu gæða kennslustunda í grunnskólum í Garðabæ.
2. 2602091 - Vistun barna utan heimilis.
Anna Eygló Karlsdóttir, deildarstjóri barnaverndar, fór yfir stöðu og verkferla Garðabæjar vegna vistunar barna utan heimilis.
3. 2512403 - Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ 2026.
Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á velferðarsviði, gerði grein fyrir helstu ákvæðum reglna Garðabæjar um fjárhagsaðstoð.
Bæjarráð vísar drögum að reglum Garðabæjar um fjárhagsaðstoð, með gildistíma frá og með 10. febrúar 2025, til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4. 2512453 - Stekkholt 16 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Golda ehf., kt. 501122-1730, leyfi fyrir byggingu einbýlishúss að Stekkholti 16.

Hrannar Bragi Eyjólfsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
5. 2507181 - Vorbraut 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf., kt. 681290-2309, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 14 íbúðum að Vorbraut 2.
6. 2306167 - Meðferðarheimili - lóð við Friðarvelli 1.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við Fjármála- og efnahagsráðuneytið vegna byggingarréttar og gatnagerðargjalda Meðferðarheimilis að Friðarvöllum 1.
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra umboð til að ganga til samninga við Fjármála- og efnahagsráðuneytið um makaskipti og afsal vegna byggingaráforma Meðferðarheimilis að Friðarvöllum 1, þ.a. ríkið afsali sér Spítalavegi 2 (Sunnuhvoli) til Garðabæjar sem endurgjald lóðarinnar Friðarvelli 1, með byggingarheimildum. Jafnframt felur bæjarráð umhverfissviði að hefja undirbúning gatnagerðarframkvæmda vegna byggingaráformanna.
7. 2602078 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Pútt og pottar ehf. um veitingaleyfi.
Lögð fram umsókn Pútts og potta ehf. um veitingaleyfi í Flokki II - A veitingahús í fl. II í golfskála Golfklúbbsins Odds, ásamt leyfi til útiveitinga.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
8. 2507256 - Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029) - Reglur um greiðslur til dagforeldra.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingum á reglum um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
9. 2602074 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - Viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna, dags. 04.02.26.
Lagt fram erindi SSH vegna viðbragðsteymis vegna ofbeldis meðal barna, ásamt samstarfsyfirlýsingu vegna þátttöku Barna- og fjölskyldustofu (BOFS) og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í miðlægu bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.

Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu á velferðarsviði og fræðslu- og frístundasviði.
10. 2602079 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - Brúum umönnunarbilið - Skýrsla og tillögur aðgerðarhóps, dags. 04.02.26.
Lögð fram skýrsla forsætisráðuneytisins vegna brúunar umönnunarbilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar SSH frá fundi stjórnarinnar 2. febrúar sl. um mikilvægi þess að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu séu kölluð að borðinu við vinnuna og að tillögur skýrslunnar séu skoðaðar og ígrundaðar vel, en samkvæmt skýrslunni er mjög skammur tími ætlaður til undirbúnings og viðræðna vegna þeirra. Bæjarráð vísar málinu til skoðunar á fræðslu- og frístundasviði.
11. 2602080 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 622. fundi stjórnar SSH - Ofanflóðahættumat - Skíðasvæðin, dags. 05.02.26.
Lagt fram.
12. 2602077 - Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi átak til hvatningar framboða, dags. 05.02.26.
Lagt fram.
13. 2602048 - Tilkynning Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi landsþing sambandsins sem fram fer 23.-25. september 2026.
Í bréfinu er boðað til landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður dagana 23.-25. september 2026 á Akureyri.
14. 2602092 - Tilkynning innviðaráðuneytisins varðandi könnun um einföldun regluverks um verkefni sveitarfélaga, dags. 03.02.26.
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta