Til bakaPrenta
Umhverfisnefnd Garðabæjar - 33 (22-26)

Haldinn í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi,
11.02.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Stella Stefánsdóttir formaður,
Jóna Sæmundsdóttir aðalmaður,
Eiríkur Þorbjörnsson aðalmaður,
Greta Ósk Óskarsdóttir aðalmaður,
Eyþór Eðvarðsson aðalmaður,
Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Linda Björk Jóhannsdóttir verkefnastjóri, Egill Daði Gíslason deildarstjóri umhverfis og framkvæmda.
Fundargerð ritaði: Linda Björk Jóhannsdóttir, verkefnastjóri umhverfismála


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1710244 - Gálgahraun, deiliskipulag friðlands.
Dagný Bjarnadóttir, landslagsarkitekt kynnti tillögu að deiliskipulagi Gálgahrauns.
2. 2509268 - Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025
Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti helstu niðurstöður þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar á árinu 2025 og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Umhverfisnefnd leggur til að umhverfissvið rýni frekar í niðurstöður sem lúta að sorphirðu og endurvinnslumálum.
3. 2503029 - Sjóvarnir á Álftanesi og í Garðahverfi
Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda kynnti stöðu sjóvarna á Álftanesi og Garðahverfi. Vegagerðin hefur hafið framkvæmdir vegna sjóvarnarverkefna á Álftanesi samkvæmt samgönguáætlun á eftirfarandi stöðum: Hliðsnes, Höfðabraut við Hlið, Kasthúsatjörn og Blikastíg.
4. 2601514 - Breyting á þingsályktun nr.24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landsvæða, 307. mál.
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta