Til bakaPrenta
Skipulagsnefnd Garðabæjar - 9

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi,
11.06.2026 og hófst hann kl. 08:00
Fundinn sátu: Björg Fenger aðalmaður,
Ásgeir Sigurður Ágústsson aðalmaður,
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir aðalmaður,
Agla Eir Vilhjálmsdóttir aðalmaður,
Einar Þór Einarsson aðalmaður,
Baldur Ólafur Svavarsson varaáheyrnarfulltrúi,
Kjartan Atli Kjartansson áheyrnarfulltrúi,
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri, Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs, Hrönn Hafliðadóttir verkefnastjóri.
Fundargerð ritaði: Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri
Formaður skipulagsnefndar bauð nefndarmenn og áheyrnarfulltrúa velkomna til starfa í nýskipaðri nefnd.
Formaður óskaði eftir því að eitt mál sem ekki var á dagskrá fundarboðs yrði á dagskrá fundar. Það er dagskrárliður nr.14. Skipulagsnefnd samþykkti að málið yrði tekið á dagskrá.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2606062 - Vinastræti 18-26 - Deiliskipulagsbreyting
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögum Urriðaholts ehf og lóðarhafa Vinastrætis 18-26 að breytingum deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3. áfanga (háholts).
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
2. 1903374 - Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri greindu nýrri skipulagsnefnd frá stöðunni á vinnu við nýtt skipulag sem unnið hefur verið að um árabil fyrir Norðurnes á Álftanesi.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
3. 1803108 - Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri greindu nýrri skipulagsnefnd frá mótun á deiliskipulagstillögu og því ferli sem unnið hefur verið að um árabil á skipulagi Norðurness.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
4. 2510094 - Vetrarmýri - Dsk.br. - Skólalóð
Skipulagsstjóri greindi nýrri nefnd frá þeirri frumvinnu sem hefur átt sér stað við mótun tillögu að deiliskipulagi fyrir skólalóð í Vetrarmýri við rætur Hnoðraholts.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði, fræðslu-og frístundasviði og ráðgjöfum.
5. 2601206 - Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Skipulagsstjóri greindi frá veitingu byggingarleyfis fyrir einbýlishús að Hraunhólum 6a. Uppdrættir teljast í fullu samræmi við gildandi deiliskipulag.
Sú tillaga sem vísað hafði verið til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra ásamt athugasemdum er því felld niður.
6. 2604413 - Hraunhólar - Lynghólar - samgöngustígur - Deiliskipulag
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu skipulags hvað varðar stígakerfi í Lynghólum, Hraunhólum og vestanverðum bæjargarði.
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að móta tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunholts eystra og deiliskipulagi bæjargarðs sem eru í samræmi við Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 m.s.br.
7. 2604512 - Arnarland - Deiliskipulagsbreytingar
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir nokkrum breytingum á deiliskipulagi Arnarlands sem sótt hefur verið um og hafa verið samþykktar á afgreiðslufundi skipulagsstjóra.
8. 2605041 - Vetrarmýri_Dsk.br. - Tillaga A - Götur, bílastæði, Vb 1-9
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir umsókn uppbyggingaraðila í Vetrarmýri um breytingu á deiliskipulagi Vetarmýrar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjafa.
9. 2605042 - Vetrarmýri_Dsk.br. - Tillaga B - Vb 15 og 24-28
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir umsókn uppbyggingaraðila í Vetrarmýri um breytingu á deiliskipulagi Vetarmýrar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjafa.
10. 2605395 - Eskiás - Bílastæði - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn íbúa í Eskiási um útfærslu bílastæða.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
11. 2606005 - Garðatorg - póstbox - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn Heima um staðsetningu póstboxa við Garðatorg.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
12. 2605184 - Þríhnúkar - Deiliskipulag
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við framlagða skipulagslýsingu.
13. 2605322 - Hafnarfjörður - Hólshraun dsk.br. - Umsagnarbeiðni - málnr. 2026/633
Lögð fram beiðni um umsögn Garðabæjar við tillögu að breytingu deiliskipulags við Hólshraun.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til skoðunar hjá umhverfissviði.
14. 2405208 - Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir rýmum sem tengjast veislu-og veitingaþjónustu í núverandi atvinnuhúsnæði.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á Norðurnesi. Samkvæmt aðalskipulagi er byggingin staðsett á opnu svæði.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal íbúum við Fálkastíg, Blikastíg, Grund, Breiðabólstöðum, Hvol, Jörfa og Seilu sem og landeigendum á Norðurnesi.
Fundargerð
15. 2605016F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 6
15.1. 2604257 - Blikanes 27 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn vegna viðhalds og endurnýjunar á þaki við Blikanes 27, sem leiðir af sér hækkun á þakhæð um 20 cm. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærsluna svo lengi sem að breytt þakhæð sé í samræmi við ákvæði deiliskipulag Arnarness um hámarkshæð 2 hæða húsa eða 8 m.
16. 2605022F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 6
16.1. 2604344 - Fjarskiptamastur - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
Íslandsturnar Sendingastaðir hf. sækja um leyfi til að reisa 16 metra fjarskiptamastur á lóðinni Fjarskiptamastur. Suðurnesv. - Höfðabraut, í samræmi við framlögð gögn. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis.
16.2. 2604570 - Hátún 5B - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja fyrirspurn um frágang á lóð við Hátún 5B. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
16.3. 2305315 - Kumlamýri 22 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram uppfærðir lóðaruppdrættir fyrir Kumlamýri 22. Skipulagsstjóri gerir ekki athugsasemd við framlagða útfærslu á lóð.
16.4. 2604373 - Vesturtún 53b - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um byggingu smáhýsis við Vesturtún 53b, ásamt samþykki aðliggjandi lóðarhafa. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða framkvæmd þegar smáhýsi sem nú þegar er á lóðinni hefur verið fjarlægt og ef hæð og stærð fari ekki yfir viðmið byggingarreglugerðar um smáhýsi.
16.5. 2506035 - Vesturhraun 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að undangenginni deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.
16.6. 2602301 - Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu ásamt innsendri athugasemd.
Gerð er athugasemd við staðsetningu nýs svefnherbergisglugga vegna möguleika á innsýn að aðliggjandi lóð og lagt er til að færa gluggan að austurhlið.
Þar sem að fleiri svefnherbergisgluggar snúa nú þegar að aðliggjandi lóð telur skipulagsstjóri staðsetningu viðbótar glugga ekki íþyngjandi. Ef samkomulag næst milli eigenda húsanna um staðsetningu á austurhlið gerir skipulagsstjóri ekki heldur athugasemd við þá staðsetningu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við það að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn eða aðra útfærslu í samkomulagi milli eigenda.
16.7. 2604300 - Steinprýði 10 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Steinprýði 10. Tillagan felur í sér að skipta lóðinni upp í tvær lóðir fyrir tvíbýli.
Skipulagsstjóri getur ekki fallist á umsóknina, þar sem skipulagsnefnd Garðabæjar hefur hafnað sambærilegri umsókn innan sama skipulagssvæðis.
16.8. 2604250 - Þernunes 6 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Þernunes 6.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
16.9. 2605045 - Blikanes 27 - Veggur
Lögð fram fyrispurn um útfærslu stoðveggja við Blikanes 27. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærsluna en minnir á að allur frágangur á lóðarmörkum skal gerður í samráði við aðliggjandi lóðarhafa.
16.10. 2604288 - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Lágmarksstærð svala
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.6 sem nær til lágmarksstærðar svala og segir að lágmarksstærð svala skuli vera í öllum íbúðum að lágmarki 6 m². Sótt er um að ákvæði um lágmarksstærð svala breytist á þann hátt að lágmarksstærð svala fyrir íbúðir stærri en 80 m2 skuli vera að lágmarki 6 m² en fyrir íbúðir minni en 80 m² skulu svalir vera að lágmarki 4 m².
Skipulagsstjóri fellst á breytingartillöguna og metur hana sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
16.11. 2604289 - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Inndregnar svalir
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.6 sem nær til inndreginna svala. Sótt er um að ákvæði um inndregnar svalir breytist á þann hátt að 70 % svala í byggingum skulu ganga a.m.k. 1 m inn í byggingarnar.
Skipulagsstjóri fellst á breytingartillöguna og metur hana sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
16.12. 2604292 - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Lágmarks salarhæð
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.5 sem nær til salarhæðar fjölbýlishúsa og segir að lágmarkssalarhæð skuli vera 3 m. Sótt er um að ákvæði um salarhæð fjölbýlishúsa breytist á þann hátt að lágmarks salarhæð fjölbýlishúsa skuli vera 2,9 m.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
16.13. 2604291 - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - 30 cm jarðlag í inngörðum
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarland sem nær til greinar 5.2.7 sem tekur á lágmarksþykkt jarðlaga í inngörðum á yfirborði þakplötu bílakjallara og segir að það skuli vera að lágmarki 30 cm. Sótt er um að ákvæði um lágmarksþykkt jarðlaga í inngörðum á yfirborði þakplötu bílakjallara breytist á þann hátt að 25% yfirborðs í inngörðum skal hafa jarðvegsþykkt að lágmarki 30 cm, til að styðja við vöx gróðurs.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
16.14. 2604293 - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Svalir í inngarði
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarland sem nær til greinar 5.2.5.6 sem tekur á svölum/frönskum svölum að inngörðum. Sótt er um að ákvæði um svalir/franskar svalir veðri fellt út. Skipulagsstjóri fellst á að ákvæði um svalir að inngörðum sé valkvætt en a.m.k. skuli vera franskar svalir sem snúa að inngörðum.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
16.15. 2604294 - Arnarland_Umsókn um dsk.br. - Hjólastæði
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.3.3 sem nær til hjólastæða. Umsókn kveður á um að ákvæði um hjólastæði breytist á þann hátt:
- Heimilt er að koma fyrir hjólastæðum í séreignageymslur íbúða fjölbýlishúsa.
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 250 m² af skrifstofuhúsnæði
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 100 m² af verslun og þjónustu
- 1 hjólastæði skal vera fyrir hverja 200 m² af heilbrigðisstafsemi
- 5 hjólastæði skal vera fyrir hverja 100 nemendur í leikskóla og 0,2 hjólastæði fyrir hvern starfsmann.
Skipulagsstjóri leggur til að rými í kjallara heilsuklasa verði skilgreint sem geymslurými en verði nýtt sem bíla- og/eða hjólastæði ef að þörf krefur.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
16.16. 2604295 - Arnarland_Umsókn um dsk.br. gróður á inndregnum þakflötum
Lögð fram umsókn um breytingu á ákvæði deiliskipulags Arnarlands, grein 5.2.5.8 sem nær til gróðurs á húsþökum. Sótt er um að ákvæði um gróður á húsþökum breytist á þann hátt að heimilt verður að falla frá ákvæðunum á þökum inndregna byggingarhluta og í stað þess að skal setja hellur.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarlands í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
16.17. 2604063 - Aratún 20 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Aratún 20 ásamt samþykki lóðarhafa í sömu raðhúsalengju.
Viðbygging fer líttilega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað
ofangreint atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
16.18. 2603416 - Tjarnarflöt 9 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna Tjarnaflatar 9. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
16.19. 2603421 - Vorbraut 4 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Vorbraut 4 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en flatarmál kjallara er 56 m²
meira en heimilað er en flatarmál ofanjarðar er 51,7 m² undir heimild. Kjallari fer 2 metra út fyrir byggingareit á baklóð. Einnig er GK kjallara og 1. hæðar um 20 cm hærri en hæðarblað segir til um en fer þó bygging ekki upp fyrir leyfilega hámarkshæð skv. deiliskipulagi. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að við lóðarfrágang verði hugað vel að gróðursetningu trágróðurs að norðanverðu vegna ásýndar útveggjar bílageymslu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 3. mgr. sömu greinar hvað ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
16.20. 2603420 - Vorbraut 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Vorbraut 6 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en flatarmál kjallara er 47 m² meira en heimilað er en flatarmál ofanjarðar er 51,7 m² undir heimild. Kjallari fer 2 metra út fyrir byggingareit á baklóð. Einnig er GK kjallara og 1. hæðar um 1,5 m hærri en hæðarblað segir til um en fer þó bygging ekki upp fyrir leyfilega hámarkshæð skv. deiliskipulagi. Skipulagsstjóri leggur áherslu á að við lóðarfrágang verði hugað vel að gróðursetningu trágróðurs að norðanverðu vegna ásýndar útveggjar bílageymslu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað
ofangreind atriði varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
16.21. 2603466 - Urriðaholtsstræti 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir Urriðaholtsstrætis 3 sem fylgja umsókn um
byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru að mestu í samræmi við ákvæði deiliskipulags en heimilað byggingamagn samkvæmt deiliskipulagsskilmálum er 2.500 m² í atvinnuhúsnæði og
2.000 m² í bílgeysmslu. Samkvæmt byggingarlýsingu er byggingarmagn atvinnuhúsnæðis 2.445,7 m² en byggingarmagn bílgeymslu, sem er neðanjarðar og innan byggingarreits, er 2.809,4 m² eða 809,4 m² umfram byggingarheimildir.
Umsókn kallar á breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluti 4. áfangi.
Skipulagsstjóri metur breytingartillögu sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðahots, norðurhluti 4. áfangi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og Garðabæjar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
17. 2606009F - Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 8
17.1. 2405208 - Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Umsóknin felur í sér breytingar á áður samþykktum aðaluppdráttum atvinnuhúsnæðis við Spildu A í landi Grundar þar sem nú er gert ráð fyrir veislusal og geymslurýmum. Skipulagsstjóri vísar umsókninni til skoðunar hjá umhverfissviði.
17.2. 2604571 - Steinprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skyggni byggingar fer út fyrir byggingarreit en í deiliskipulagi Garðahrauns er kveðið á um að hús skulu vera innan byggingarreits og gildir það einnig um skyggni.
Skipulagsstjóri bendir á að skyggni nær talsvert út fyrir byggingarreit að sunnanverðu og kallar því á deiliskipulagsbreytingu.
17.3. 2409044 - Mávanes 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum að íbúðarhúsinu að Mávanesi 13.
Útfærslu hefur verið breytt frá auglýstri tillögu að breytingu deiliskipulags og er bátaskýli nú staðsett innan byggingarreits með tengingu við íbúðarhúsið.
Þar sem að tillagan gerir nú ráð fyrir viðbyggingu sem er innan byggingarreits og tengd íbúðarhúsinu með beinum hætti telst tillagan í samræmi við deiliskipulag Arnarness.
Tæknirými nær lítillega út fyrir byggingarreit að norðanverðu samkvæmt uppdrættinum. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu gerði ráð fyrir breytingu byggingarreits hvað þá viðbyggingu varðar og voru ekki gerðar athugasemdir við þann þátt málsins.
Nú hefur tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerði ráð fyrir breytingu á lögu lóðar og staðsetningu bátaskýlis að hluta til utan lóðarmarka verið dregin til baka.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða aðaluppdrætti.
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað varðar tæknirými sem nær lítillega út fyrir byggingarreit.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
17.4. 2605411 - Teistunes 1 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Arnarness vegna stækkunar á byggingarreit við Teistunes 1.
Skipulagsstjóri metur tillögina sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Kríunesi 1 og 4, Súlunesi 3 og 5 og Þernunesi 3 og 5.
17.5. 2605366 - Stígar - framkvæmdarleyfi - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna gerðar göngu- og hjólastígs vestan Hafnarfjarðarvegar sem nær frá Lyngás að Álftanesvegi. Lega stígs er í samræmi við gildandi aðalskipulag. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn. Um ákvörðun skipulagsstjóra víasast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Samhliða er lögð fram embættisafgreiðsla skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar vegna umsóknar Betri Samgangna um framkvæmdaleyfi. Framkvæmdin felur í sér að útbúa aðskildan hjóla- og göngustíg að sveitarfélagamörkum Garðabæjar (Súlunes - Kópavogsdalur).
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu framvæmdarleyfis að undangenginni grenndarkynningu fyrir lóðarhafa Súluness 24, 25, 26, 27 og 33.
17.6. 2605154 - Sunnakur 1 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Lagðir fram lóðaruppdrættir fyrir Sunnakur 1. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
17.7. 2309448 - Sunnuvellir 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Sunnuvelli 2.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta