| |
| 1. 2410186 - Skuldabréfaútboð Garðabæjar | | Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 1.500.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir | | |
|
| 2. 2604063 - Aratún 20 - Umsókn um byggingarheimild. | | Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Andreu Eiríksdóttur, kt. 150380-5029, leyfi fyrir viðbyggingu að Aratúni 20. | | |
|
| 3. 2602301 - Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi. | | Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Trausta Ólafssyni, kt. 090574-5669, leyfi fyrir að setja glugga á norðurhlið hússins að Dalprýði 13. | | |
|
| 4. 2603416 - Tjarnarflöt 9 - Umsókn um byggingarheimild. | | Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Óskari Óskarssyni, kt. 260663-4459, leyfi fyrir viðbyggingu að Tjarnarflöt 9. | | |
|
| 5. 2604250 - Þernunes 6 - Umsókn um byggingarheimild. | Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helgu Lilju Fenger Gunnarsdóttir, kt. 180181-4319, leyfi fyrir breytingum utanhúss og á gluggum að Þernunesi 6. Björg Fenger vék af fundi við afgreiðslu málsins. | | |
|
| 6. 2604344 - Fjarskiptamastur - Umsókn um byggingarheimild. | | Málinu frestað. | | |
|
| 7. 2604150 - Opnun tilboða í verkið - Útboð vegna Gatnagerðar í Arnarlandi. | Eftirfarandi tilboð samkvæmt gildri tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Arnarland- Gatnagerð og veitulagnir":
1. Grafa og grjót ehf., kr. 792.848.876 (101,3%). 2. Loftorka Reykjavík ehf,. kr. 813.700.000 (104,0%). 3. Háfell ehf., kr. 822.219.786 (105,1%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 782.306.879. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjót ehf. að fjárhæð kr. 792.848.876 (101,3% af kostnaðarætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
| | |
|
| 8. 2605190 - Opnun tilboða í verkið - Yfirborðsmerkingar í Garðabæ 2026. | Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Yfirborðsmerkingar gatna í Garðabæ 2026":
1. Vegamál vegmerking ehf., kr. 15.489.200 (73,7%). 2. GSG ehf., kr. 13.793.500 (65,6%)
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 21.024.200. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda GSG ehf., að fjárhæð kr. 13.793.500 (65,6% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
| | |
|
| 9. 2604558 - Opnun tilboða í verkið - Nýr gervigrasvöllur jarðvinna. | Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Ásgarður, nýr knattspyrnuvöllur: Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir":
1. Dráttarbílar vélaleiga ehf., kr. 304.828.583 (89,94%). 2. Landslagnir ehf., kr. 348.107.283 (102,71%). 3. Fagurverk ehf., kr. 358.167.600 (105,68%). 4. Bjössi ehf., kr. 365.000.000 (107,69%). 5. Gleipnir verktakar ehf., kr. 385.000.000 (113,59%). 6. Íslenskir aðalverktakar hf., kr. 399.562.678 (117,89%). 7. E. Sigurðsson ehf., kr. 424.806.173 (125,34%). 8. Stjörnugarðar ehf., kr. 431.550.010 (127,33%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 338.772.569. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla vélaleigu ehf., að fjárhæð kr. 304.828.583 (89,94% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
| | |
|
| 10. 2604558 - Útboð - Ásgarður- Nýr gervigrasvöllur vallarlýsing. | Lögð fram útboðs og verklýsing vegna vallarlýsingar á nýjum gervigrasvelli við Ásgarð.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
| | |
|
| 11. 2606050 - Hönnun Útboð - Skógarhverfi Fráveita áfangi 2. | Lögð fram útboðs og verklýsing vegna útboðs á veitulögnum og frágangi í Skógarhverfi, 2. áfanga.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
| | |
|
| 12. 2603213 - Hönnun - Útboð - Búsetukjarni við Haustbraut. | Lögð fram útboðs og verklýsing vegna útboðs á búsetukjarna við Haustbraut 2.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
| | |
|
| 13. 2606074 - Hönnun - Útboð - Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi. | | Málinu frestað. | | |
|
| 14. 2603255 - Niðurstaða stjórnsýslukæru ÚUA nr. UUA2603004 vegna deiliskipulags Vetrarmýrar og Smalaholts. | | Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2603004, þar sem hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 2. október 2025 um að samþykkja deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. | | UUA2603004 Vetrarmýri og Smalaholt.pdf | | |
|
| 15. 2605363 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 627. fundi stjórnar SSH - Álag í skólastarfi, ástæður og úrbætur, dags. 22.05.26. | Lögð fram skýrsla um starfsumhverfi í grunnskólum, álag, ástæður og úrbætur sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í skýrslunni eru settar fram tillögur til úrbóta í skólastarfi með áherslu á að draga úr álagi meðal starfsfólks í grunnskólum. Bæjarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla.
| | |
|
| 16. 2605429 - Fyrirspurn Mannréttindastofnunar Íslands um aðgengi og aðlögun málsmeðferðar, dags. 27.05.26. | Lagt fram erindi Mannréttindastofnunar Íslands varðandi leiðbeiningar um aðlögun málsmeðferðar. Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í velferðarráði. | | |
|
| 17. 2605440 - Tilkynning frá Jafnréttisstofu um landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga. | | Í tilkynningunni kemur fram að Jafnréttisstofa boðar til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga í Múlabergi, Akureyri, fimmtudaginn 17. september 2026. | | |
|